← Extras

Akureyri, Friday 25 August 1989

Kayaking down the Skjálfandafljót

Local coverage of the 1989 Sheffield expedition's first descent of the Skjálfandafljót, with English translation.

English translation

Three English daredevils will today finish a bold kayak descent of the Skjálfandafljót. They put on the river last Monday at its source beneath Vatnajökull and reached Hlíðarendi in Bárðardalur yesterday evening, where they spent the night.

The men, from Sheffield in England, are experienced kayakers and over the past five weeks have tackled several difficult rivers in Iceland, including Jökulsá á Brú and Jökulsá á Dal. There is no record of anyone having run the Skjálfandafljót by kayak before.

Dagur spoke yesterday with one of the three, Ian Bamsey, who said the Skjálfandafljót had certainly been a tough undertaking: the river was especially fast-flowing and the water very cold. He said he had seen the documentary about a kayak expedition on the Jökulsá á Fjöllum in 1985, which had inspired the group to attempt a similar journey. "We wanted to try another river and the Skjálfandafljót was the one we chose," Ian said.

The friends plan to write a pocket guide to kayaking on Icelandic rivers. They have taken many photographs on the trip and intend to illustrate the text — "that is, if we can find a publisher for the book," Ian said.

Ian says Iceland's glacial rivers are tremendous "kayak rivers" and likely to attract enthusiasts from abroad. "Yes, you could say this is paradise for kayakers," he added.

The three Englishmen are not hanging up their paddles after the Skjálfandafljót descent. They plan to stay in Iceland for another three weeks and take on more major rivers, though they have not yet decided which ones.

Original Icelandic

Á kajökum niður Skjálfandafljót

Þrír enskir ofurhugar munu í dag ljúka fræginni för á kajökum niður Skjálfandafljót. Þeir lögðu í ánn sl. mánudag frá upptökum fljótsins inn undir Vatnajökli og áðu í gær til móts við bæinn Hlíðarenda í Bárðardal, þar sem þeir dvöldust í nótt.

Piltarnir, sem eru frá Sheffield á Englandi, eru þaulvanir á kajökum og hafa undanfarnar 5 vikur lagt að velli nokkrar erfiðar ár hér á landi. Þar má nefna Jökulsá á Brú og Jökulsá á Dal. Ekki er vitað til að menn hafi áður farið niður Skjálfandafljót á kajökum.

Dagur náði tali af einum þremenninganna í gær, Ian Bamsey, og sagði hann að Skjálfandafljót vissulega verið erfitt viðureignar, það væri einkar straumþungt og vatn þess sérlega kalt. Hann kvaðst hafa séð heimildarmyndina um leiðangur kajak-manna niður Jökulsá á Fjöllum árið 1985 og hún hafi kveikt í þeim félögum að leggja í álíka leiðangur. „Við vildum prófa einhverja aðra á og Skjálfandafljót varð fyrir valinu,“ sagði Ian.

Ætlun þeirra félaga er að skrifa einskonar vasabók um kajakferðir á hérlendum ám. Þeir hafa því tekið fjölmargar myndir í túrnum og hyggjast myndskreyta textann, „það er að segja ef við fáum einhvern útgefanda af bókinni,“ sagði Ian.

Ian segir að íslensku jökulárnar séu stórskemmtilegar „kajakár“ og ætla má að þær verði eftirsóttar fyrir slíka dellukarla í útlandinu. „Jú, það má segja að þetta sé paradís fyrir kajak-unnendur,“ bætti hann við.

Þremenningarnir ensku leggja ekki árar í bát eftir ferðina niður Skjálfandafljót. Þeir hyggjast dvelja hér næstu þrjár vikurnar og glíma við fleiri stórfljót. Þeir hafa þó ekki ákveðið hvaða fljót verða fyrir valinu.